Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Heppinn áskrifandi var einn með bónusvinninginn og fær rúmar 1,6 milljón krónur í sinn hlut.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrættinum en þrír miðaeigendur voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á lotto.is, í Appinu og einn miði er í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 5.646.