Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Lottó útdrætti vikunnar og verður potturinn því fjórfaldur næsta laugardag.
Einn heppinn miðahafi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær hann 2 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir á vef okkar lotto.is, einn í Lottó appinu og einn miðanna er í áskrift.