Lottópotturinn verður fimmfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins. Þá var einn heppinn miðahafi með bónusvinninginn og fær hann 801 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur inn á vef okkar Lotto.is.
Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en sjö voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125 þúsund krónur. Þrír miðar voru keyptir inn á vef okkar lotto.is, einn á appinu okkar Lottó og þrír miðar eru í áskrift.