Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmar 213 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðinn var keyptur í Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum og hinn í Vídeómarkaðnum, Hamraborg 20a í Kópavogi.
Fimm miðaeigendur voru með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100.000 krónur hver. Allir miðarnir eru í áskrift.
Fréttir
lotto
Lottó 5/40 - tvöfaldur næst!
6. Jan 2024, 19:19