Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins og verður potturinn því tvöfaldur næsta laugardag. Bónusvinningurinn gekk heldur ekki út í þetta skiptið.
Einn áskrifandi var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær 2 milljónir króna í vinning. Sex miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Tveir miðar voru keyptir á lotto.is, tveir miðar í Appinu og tveir miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 4.793.