Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn miðahafi var með bónusvinningin sem færir honum rúmar 437 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Happahúsinu Kringlunni.
Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2,5 milljónir krónur í vinning. Miðinn var keyptur á N1 Borgarnesi. Þá voru fjórir með 2. vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning. Tveir miðar voru keyptir á lotto.is, einn í lottó appinu og einn er í áskrift.