Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Þrír miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rúmar 316 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Versluninni Bakkanum á Eyrarbakka, N1 Borgartúni í Reykjavík og Leirunesti á Akureyri.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrættinum en sjö miðaeigendur voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á lotto.is, tveir í Lottó Appinu og fjórir miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 5.068.