Heppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar í Lottó útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 21,2 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur í N1, Borgartúni 39 í Reykjavík. Einn miðahafi var með bónusvinninginn og fær hann rúmlega 531 þúsund krónur í vinning. Miðinn var keyptur í Krambúðinni, Tryggvagötu 40 á Selfossi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrættinum en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir í Appinu, Orkunni, Fitjum 2 í Reykjanesbæ, lotto.is og tveir miðar eru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 5.403.