Fyrsti vinningur gekk ekki út að þessu sinni og verður potturinn því þrefaldur næsta laugardag. Einn heppinn miðahafi var með bónusvinninginn og fær hann rétt rúmar 570.000 krónur í vinning. Miðinn var keyptur á vef okkar lotto.is.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en fimm miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra 100.000 krónur í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Mini Market Reykjanesbæ, tveir í Lotto appinu og tveir á vef okkar lotto.is