Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í útdrætti vikunnar en einn heppinn miðaeigandi var með hinn al-íslenska 3. vinning sem er að þessu sinni rúmar 1,9 milljónir króna. Miðinn var keyptur í Shellskálanum, Hveragerði.
Enginn var með 1. vinning í Jókernum en einn áskrifandi var með 2. vinning og hlýtur 100 þúsund krónur í vinning.