Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með allar tölurnar réttar í útdrætti kvöldsins og gekk bónusvinningurinn ekki heldur út að þessu sinni.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fær hvor þeirra 100 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn var keyptur á lotto.is og hinn miðinn er í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 4.956.