Fréttir

lotto

Úrslit í Lottó - Tveir með 1. vinning!

15. Feb 2025, 19:39

Tveir heppnir miðahafar sem keyptu miða í Lottó appinu skiptu með sér
1. vinningi í útdrætti kvöldsins og fær hvor þeirra tæpar 39,8 milljónir króna í sinn hlut. Fimm miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra rétt rúmar 230 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á N1 á Egilsstöðum, á vef okkar lotto.is og þrír í Lottó appinu.

 Tveir miðahafar voru með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum og fær hvor þeirra 2,5 milljónir króna í vasann. Annar miðinn var keyptur á Olís í Norðlingaholti en hinn miðinn er í áskrift. Þá voru tíu miðahafar með 2. vinning og hlýtur hver þeirra 125.000 krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á N1 við Austurveg á Selfossi, N1 í Borgarnesi, í Holtanesti í Hafnarfirði, þrír miðar í Lottó appinu, tveir miðar á vef okkar lotto.is og tveir miðanna eru í áskrift.  

 

 

 

 

lotto

Lottó - enginn með 1. vinning

Lottópotturinn stækkar þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en níu voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur.  Fjórir miðar voru keyptir í Lottó appinu, þrír á lotto.is og tveir eru í áskrift.

lotto

Fjórfaldur pottur næst - Úrslit í Lottó 4. júlí 2026

Lottópotturinn verður fjórfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn heppinn áskrifandi var með bónusvinninginn og fær hann tæplega 1,2 milljón krónur  í vasann. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn var keyptur í Lottó appinu. Þá voru fimm... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - Þrefaldur pottur næst!

Hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn gengu út í Lottó útdrætti vikunnar.verður potturinn þrefaldur næsta laugardag. Einn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jóker og fær hann 2,5 milljónir, miðinn er í áskrift. Svo voru tólf miðahafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 125.000 kr hver. Fimm miðar eru í áskr... Lesa meira

lotto

Lottó - 2 faldur næst!

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 403 þúsund krónur  í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Póló vape shop á Bústaðavegi. Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker kvöldsins og fær hann 2,5 milljónir k... Lesa meira

lotto

Hélt að verið væri að gera grín í sér

Einn heppinn og tryggur áskrifandi vann tvöfaldan fyrsta vinning í Lottó síðasta laugardag og fékk rúmar 27,7 milljónir króna í sinn hlut. Vinningurinn er skattfrjáls og kemur sér einstaklega vel þar sem vinningshafinn er að stíga sín næstu skref á fasteignamarkaðinum. Það tók þó dágóða stund fyrir vinningshafann að át... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir