Jólaleikur Íslenskrar getspár
Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 29. nóvember til klukkan 18:40 þann 26. desember. Í tilefni þess að Lottó er 40 ára um þessar mundir verða dregnir út 40 aukavinningar þann 26. desember, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna.
Leikurinn hefst sunnudaginn 29. nóvember
Allir þeir sem kaupa 10 raðir í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Milljólaleiknum. Á sölustöðum fylgir sérstakur lukkumiði sem þátttakendur verða að passa vel upp á en á netinu og í appinu kemur lukkunúmerið fram á miðanum. Allir áskrifendur verða einnig sjálfkrafa þátttakendur, óháð fjölda raða í áskrift*.
Haft verður samband við vinningshafa úr hópi áskrifenda og þá sem kaupa miða á netinu eða í appinu. Aðrir vinningshafar verða að geyma lukkumiðann sinn vel og framvísa til Íslenskrar getspár fyrir 26. desember 2027.
Vinningsnúmer verða birt á vef Íslenskrar getspár.
Dregið verður 26. desember 2026.
Athugið:
• Lukkunúmerin gilda aðeins 26. desember 2026.
• Miðar sem innihalda 10 raðir eru með í leiknum, einnig kerfismiðar og miðar sem innihalda Jóker ef verðgildi miða er a.m.k. á við 10 raða miða í viðkomandi leik.
• Margviknamiðar sem uppfylla ofangreint og eru keyptir eftir að leikurinn hefst (miðnætti 29. nóvember) fá lukkunúmer sem fara í pottinn.
• Margviknamiðar sem ná 10 raða miðaverði oftar en einu sinni á meðan leik stendur fá fleiri en eitt lukkunúmer
• Allir áskriftarmiðar eru með í pottinum – óháð fjölda raða í áskrift*.
• Vinningsnúmer eru birt á lotto.is
• Til að vitja vinninga þarf að framvísa lukkumiðanum til Íslenskrar getspár fyrir 26. desember 2027.
Dæmi: 10 raða seðill í Lottó kostar 1.500 krónur og því fylgir lukkunúmer með þeim miða.
* Dæmi: Jóna er með 10 raðir í áskrift í Lottó og 8 raðir í Vikinglotto og 3 raðir í EuroJackpot á föstudögum. Tölvukerfi Getspár útvegar Jónu sérstakt lukkunúmer fyrir hvern áskriftarmiða í hverjum útdrætti. Jóna fær því samtals 4 lukkunúmer fyrir EuroJackpot áskriftarmiðann sinn (4. 11. 18. og 25. desember) 4 lukkunúmer fyrir Lotto áskriftarmiðann sinn (5. 12. 19. og 26. desember) og 4 lukkunúmer fyrir Vikinglotto áskriftarmiðann sinn (2. 9. 16. og 23. desember).